Sjómannastemming

Nú fyrir 6 mínútum síðan gafst ég upp á playlista rásar 2 og slökkti á honum. Hann var bara of leiðinlegur. Skellti einu lagi með Gylfa Ægissyni á fóninn, fallerí heitir það og kemur mér alltaf í gott skap. Nú óma svo sjómannalög á rás 2 og munu gera næsta klukkutímann. Guð má vita hvað verður sett á fóninn þá.

Bakið að skána

Bakverkir mínir minnka á sama tíma og ég hef hætt að borða verkjalyf. Mér var reyndar skipað að hætta að borða verkjalyf enda hélt læknirinn að íbúfen væri að éta á mér innviðina. En nú er spurningin, veldur íbúfen bakverkjum eða ætli þessi skyndilegi bati tengist því að ég hef ekkert haldið á Val í 5 daga?

Næsta sumar

Þættinum hefur borist bréf. Hvað ætlar Njallinn að gera næsta sumar fyrst hann nennir ekki að næturmannast lengur? Þetta er góð spurning. Eflaust hlýtur kallinn að geta fundið sér eitthvað til dundurs. Einhver sumarvinna í nokkrar vikur, jafnvel búa til eitthvað kennsluefni eða skrifa lokaritgerð. Margir möguleikar hér í boði.

Þættinum hefur borist annað bréf þar sem spurt er hvílíkur eymingji bloggritari sé. Það skal hér upplýst að það er mjög meðvitað og tilgangurinn sá að fá samúðarkveðjur frá vel innrættum lesendum. Blómum og konfektkössum hefur líka rignt yfir mig í einveru minni og veikindum. Ef þú ert ekki búinn að senda neitt slíkt lesandi góður þá ert þú kannski ekkert voðalega vel innrættur.


hættur, búinn, farinn

Í dag tók ég ákvörðun um að þetta verði síðasta sumarið mitt á næturvöktum. Ég á einfaldlega ekki jafn auðvelt með að snúa sólarhringnum við og áður. Er ég að verða gamall? Já, eins og allir aðrir. Í haust fagna ég því að einungis 40 ár eru í ellilífeyrinn.

Ég er kominn með hita og flensu, heilsuleysi mitt er algert þessa dagana. Ég kenni næturvöktunum um. Þeim verður kennt um allt slæmt næstu vikurnar. Ég held ég sé líka með Sunnu og Vals fráhvarfseinkenni.

 


Einmannalegt í kotinu

Hér á Kaplaskjólsveginum er voðalega rólegt þar sem ég sit einn og horfi á leik fh og hb frá Færeyjum. Ágætt að þetta ástand varir bara í eina viku.

Fuglinn floginn

Valur hóf sig til flugs í morgun og fór til Svíþjóðar. Tók mömmu sína með en skildi pabba einan eftir í kotinu og sagði honum að vinna næturvaktir í heila viku. Mér finnst að ég hafi dregið stutta stráið.

Röntgegnmyndin segir að ekkert sé sjáanlega að bakinu á mér, ég sé bara eymingi af verstu sort. Jæja, áfram skal haldið í rannsóknir, á morgun verður blóð tekið og pissað í glas.

 


Nýjar myndir

Litli kútur Valur býður upp á splunkunýjar ferðamyndir á sinni síðu.

Einar Oddur dáinn

Ekki er það oft sem ég syrgi stjórnmálamenn og hvað þá jafn hægrisinnaða kapítalista og Einar Odd Kristjánsson. En ég syrgi kallinn enda var þetta einn af fáum karakterum á Alþingi og gaf því smá líf á köflum. Flestir þingmenn eru leiðinlegir (amk opinberlega)

björgun...

...hefði ekki verið nær að skjóta skepnuna?

Því fleiri hvalir skotnir, því betra!


mbl.is Hvalurinn bjargaðist frá landreki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fleiri fatlafól

Mér fannst það til marks um hversu gölluð fjölskyldan er að þegar ég var búinn í röntgen í morgun gekk ég fram á föðurbróður minn sem gat sig varla hreyft. Ætli það sé hægt að semja um fjölskylduafslátt hjá bæklunarlæknum?

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband