Víagra, rúv og sitthvað fleira

Fyrir þá sem ekki eru svo lánsamir að fá póst frá hinni opinberu heimasíðu Viagra vil ég benda á að í septembermánuði ku vera 74% afsláttur af bláu pillunum góðu. Þetta fyrirtæki virðist hafa litla trú á getu minni á þessu sviði og hefur sent mér póst um þetta tilboð þrívegis á síðustu viku.

Í dag hélt ég með nemendur mína á rúv í skoðunaferð, hún var ágæt.

Mér hefur borist til eyrna að Valur Gunnarsson hafi verið gerður að heiðursfélaga í KA-klúbbnum og fái frítt á öllum öldurhúsum norðan heiða næsta árið. Sel þetta ekki dýrara en ég keypti það.

Í fótbolta áðan fauk í mig, það gerist einstaka sinnum en að þessu sinni fótbrotnaði enginn. Bróðir minn á hinn bóginn mætti í gulum aðskornum ermalausum spandexbol í boltann sem geirvörturnar skörtuðu sínu fegursta - í kjölfarið verður efast um kynhneigð hans næstu mánuðina.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sunna Mímisdóttir

Þú getur fengið bleika spandexbolinn minn lánaðan fyrir næsta bolta og þá verðið þið í stíl.

Sunna Mímisdóttir, 25.9.2007 kl. 09:34

2 identicon

Hananú, Njallinn aftur farinn að rífa kjaft á veraldarvefnum - gaman að því. Tók mér (þetta er viljandi gert og leyfilegt í dag) til og las allan Njallann frá upphafi til enda? svona til þess að sjá hvað á daga hans hefur drifið eftir að stud. jur og magister einn benti mig á það. HVERN ANDSKOTANN ÁTT þÚ VIÐ MEÐ ÞVÍ AÐ SEGJA KINDUR SÉU LAKARI SKEPNUR EN KÝR. MENN SEM HAFA ALDREI Í FJÓS KOMIÐ VITA EKKERT UM FEGURÐ OG GÆÐI KINDA OG KÚA. En ég vill í mat koma og þó að eitthvað þurfi að dytta að einni íbúð eða svo í leiðinni er engin hindrun. Og að lokum vill ég sjá Njallann í spandex - engu - nema spandex.

John O´Shea (IP-tala skráð) 26.9.2007 kl. 04:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband